Ferill 531. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1230 — 531. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja og lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta (fjármögnun skilasjóðs, iðgjöld og fyrirkomulag Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja).
(Eftir 2. umræðu, 13. júní.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020.
1. gr.
Lögfesting.
Reglugerð (ESB) 2015/63 er birt á bls. 49–69 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 10. febrúar 2022. Reglugerð (ESB) 2016/1434 er birt á bls. 13–15 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 10. febrúar 2022.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
a. Í stað orðanna „innstæðueigenda og fjárfesta greiða skilavaldinu“ í 1. mgr. kemur: vegna fjármálafyrirtækja greiða skilavaldinu úr innstæðudeild sjóðsins.
b. Í stað orðanna „innstæðueigenda og fjárfesta“ í 2., 3., 4., 5. og 8. mgr. kemur: vegna fjármálafyrirtækja.
c. Í stað tilvísunarinnar „14. mgr.“ í 5. mgr. kemur: 1. mgr.
d. Í stað orðanna „Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta“ í 6. mgr. kemur: innstæðudeildar Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja.
e. Í stað orðanna „innstæðueigenda og fjárfesta ekki krafinn um eiginfjárframlag“ í 7. mgr. kemur: vegna fjármálafyrirtækja ekki krafinn um eiginfjárframlag úr innstæðudeild sjóðsins.
5. gr.
a. 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Starfrækja skal sérstakt fjármögnunarfyrirkomulag sem nefnist skilasjóður.
b. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sjóðurinn skal varðveittur sem afmörkuð deild í Tryggingarsjóði vegna fjármálafyrirtækja.
c. Við 2. mgr. bætist: allra lánastofnana sem hafa starfsleyfi hér á landi.
d. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Stjórn Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja fer með umsýslu skilasjóðs.
6. gr.
a. (87. gr. a.)
Framlag í skilasjóð.
Skilavaldið ákvarðar framlag í skilasjóð.
Framlag fyrirtækis skal ákvarðað árlega og skal það vera hlutfall af fjárhæð heildarskuldbindinga fyrirtækisins að frádregnum tryggðum innstæðum og eiginfjárgrunni skv. 1. mgr. 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Framlagið ber að ákvarða með tilliti til áhættusniðs fyrir sérhvert fyrirtæki í samræmi við reglugerðir (ESB) 2015/63 og (ESB) 2016/1434 sem hafa lagagildi hér á landi, sbr. 2. gr. a.
Þrátt fyrir 3. mgr. skal fyrirtæki greiða fast framlag í skilasjóð skv. 10. gr. reglugerðar (ESB) 2015/63 ef heildareignir þess eru minni en jafnvirði eins milljarðs evra í íslenskum krónum og heildarskuldbindingar að frádregnum eiginfjárgrunni og tryggðum innstæðum eru jafnar eða lægri en jafnvirði 300 milljóna evra í íslenskum krónum.
Ákvæði þessarar greinar gilda einnig, ef við á, um útibú skv. e-lið 1. mgr. 2. gr.
b. (87. gr. b.)
Sérstakt eftiráframlag.
Sérstaks eftiráframlags skal aflað í samræmi við 87. gr. a og getur það numið allt að þreföldu árlegu framlagi eins og það er ákvarðað samkvæmt þeirri grein.
Skilavaldið getur ákveðið að sérstöku eftiráframlagi verði frestað að hluta eða í heild í allt að sex mánuði ef framlagið getur haft verulega neikvæð áhrif á lausafjárstöðu eða gjaldfærni fyrirtækis. Heimilt er að framlengja tímabil frestunar að beiðni fyrirtækis. Fyrirtæki skal greiða frestað framlag þegar greiðsla þess stofnar ekki lengur lausafjárstöðu eða gjaldfærni fyrirtækisins í hættu.
Ráðherra setur reglugerð sem tilgreinir aðstæður og skilyrði til frestunar sérstaks eftiráframlags skv. 3. mgr.
c. (87. gr. c.)
Lántaka og önnur fjármögnun skilasjóðs.
Skilavaldinu er heimilt, að undangengnu samþykki ráðherra, að ákveða að skilasjóður taki lán hjá hliðstæðu fjármögnunarfyrirkomulagi, einu eða fleiri, í öðru aðildarríki ef fjármunir skv. 1. mgr. duga ekki til að mæta tapi, kostnaði eða öðrum útgjöldum sjóðsins. Við sömu aðstæður er skilasjóði heimilt, að undangengnu samþykki ráðherra, að lána hliðstæðu fjármögnunarfyrirkomulagi í öðru aðildarríki.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
Stjórn Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja skal eigi síðar en fyrir árslok 2022 færa 26,3 milljarða kr. úr innstæðudeild sjóðsins í skilasjóð.
II. KAFLI
Breyting á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999.
10. gr.
Markmið með lögum þessum er að veita innstæðueigendum og viðskiptavinum fjármálafyrirtækja lágmarksvernd vegna greiðsluerfiðleika fjármálafyrirtækja í samræmi við ákvæði laga þessara og laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
11. gr.
a. 1. málsl. orðast svo: Með framkvæmd laga þessara fer sérstök stofnun er nefnist Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja, hér eftir nefndur sjóðurinn.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Framkvæmdaraðili.
12. gr.
a. 1. málsl. orðast svo: Viðskiptabankar, sparisjóðir, verðbréfafyrirtæki og, ef við á, lánafyrirtæki, rekstrarfélög verðbréfasjóða og rekstraraðilar sérhæfðra sjóða skulu eiga aðild að innstæðu- og/eða verðbréfadeild sjóðsins, enda hafi þeir staðfestu hér á landi.
b. Tilvísunin „,sbr. ákvæði 6. og 7. gr.“ í 3. málsl. fellur brott.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Um fyrirkomulag skilasjóðs fer eftir lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja nema annað leiði af lögum þessum.
d. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Fyrirkomulag sjóðsins.
13. gr.
a. Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: fjórum.
b. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu frá Samtökum fjármálafyrirtækja, einn samkvæmt tilnefningu frá Seðlabanka Íslands og tveir af ráðherra án tilnefningar.
c. 3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
d. Á eftir 4. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Einfaldur meiri hluti atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Falli atkvæði stjórnarmanna jafnt ræður atkvæði formanns úrslitum.
e. Í stað orðanna „viðskiptabanka og sparisjóði“ í 4. mgr. kemur: skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
f. Í stað 5. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Stjórn sjóðsins skal árlega, eða oftar ef ástæða þykir til, gera ráðherra skriflega grein fyrir afstöðu sinni til þess hvort innheimta þurfi iðgjöld í innstæðudeild sjóðsins.
Stjórn setur sjóðnum samþykktir sem háðar skulu samþykki ráðherra að fenginni umsögn Seðlabankans. Nánar skal kveðið á um verkefni stjórnar sjóðsins í samþykktum hans.
14. gr.
a. 3. og 4. málsl. 1. mgr. falla brott.
b. 2., 3. og 4. málsl. 2. mgr. falla brott.
c. 3. mgr. fellur brott
15. gr.
a. 1. málsl. orðast svo: Sjóðurinn starfar í þremur sjálfstæðum deildum: innstæðudeild, verðbréfadeild og skilasjóði.
b. 2. og 3. málsl. falla brott.
c. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Deildir sjóðsins.
16. gr.
a. Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Innstæðudeild skal á hverjum tíma hafa yfir að ráða tiltækum fjármunum sem nema að lágmarki 0,8% af tryggðum innstæðum allra lánastofnana sem hafa starfsleyfi hér á landi.
b. Í stað orðsins „A-deildar“ í 1. mgr. kemur: innstæðudeildar.
c. Í stað orðsins „A-deild“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: innstæðudeild.
d. Í stað hlutfallstalnanna „0,02%“, „0,16%“, „0,005% og „0,04%“ í 3. mgr. kemur, í hverju tilviki: 0%.
e. Í stað orðanna „Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta“ í 6. og 11. mgr. kemur: Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja.
f. Lokamálsgrein fellur brott.
g. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Innstæðudeild.
17. gr.
Skilasjóður.
Um greiðslur í skilasjóð fer samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
18. gr.
19. gr.
a. Í stað orðanna „A- eða B-deild“ í 2. og 4. málsl. 1. mgr. kemur: innstæðudeild.
b. Við 3. málsl. 1. mgr. bætist: eða við skilameðferð lánastofnunar að uppfylltum skilyrðum 82. gr. laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Skilavald samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja tekur ákvörðun um greiðslur úr skilasjóði. Um framkvæmd greiðslna úr skilasjóði fer samkvæmt fyrirmælum skilavaldsins.
20. gr.
a. Á eftir orðinu „eignir“ í 3. mgr. kemur: innstæðu- eða verðbréfadeildar.
b. Í stað orðsins „sjóðnum“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: innstæðu- eða verðbréfadeild sjóðsins.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Skilavaldið ákvarðar fjárhæð greiðslna úr skilasjóði á grundvelli laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
21. gr.
a. Í stað orðsins „deilda“ í 1. málsl. kemur: innstæðudeildar og verðbréfadeildar.
b. 3. málsl. fellur brott.
22. gr.
23. gr.
a. Í stað orðanna „viðskiptabanka, sparisjóða, fyrirtækja í verðbréfaþjónustu og lánastofnana annarra en viðskiptabanka og sparisjóða“ í 1. mgr. kemur: fjármálafyrirtækja.
b. Í stað orðsins „sjóðnum“ í 1., 2. og 3. mgr. kemur: innstæðudeild og verðbréfadeild sjóðsins.
c. Greinin fær fyrirsögn, svohljóðandi: Útibú erlendra fjármálafyrirtækja hér á landi.
24. gr.
a. Í stað orðanna „á afgreiðslustöðum sínum hafa til reiðu skriflegar upplýsingar um aðild sína að sjóðnum“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: birta á vefsíðum sínum upplýsingar um aðild sína að innstæðu- og verðbréfadeild sjóðsins.
b. Í stað orðsins „sjóðnum“ í 2. mgr. kemur: innstæðudeild og verðbréfadeild sjóðsins.
c. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Birting upplýsinga.
25. gr.
26. gr.
27. gr.
28. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2.–13. mgr. 5. gr. b laganna skulu innlánsstofnanir ekki greiða iðgjald í innstæðudeild Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja frá gildistöku laga þessara og þar til annað verður ákveðið með lögum. Innlánsstofnanir skulu þó eftir sem áður standa sjóðnum skil á upplýsingum um innstæður í því formi sem sjóðurinn ákveður.
29. gr.
30. gr.
1. Lög um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999: Í stað orðanna „Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta og öryggissjóðir“ í 13. tölul. 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: Innstæðudeild Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja.
2. Lög um fjarsölu á fjármálaþjónustu, nr. 33/2005: Í stað orðanna „Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta“ í 2. tölul. 8. gr. laganna kemur: Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækja.